Í Fiskifréttum þann 9. maí 1986 sagði frá því að engu líkara væri en að Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, hefði varpað sprengju inn í hóp útgerðarmanna á ráðstefnu Fiskiðnar. Þar hafi Páll gagnrýnt kvótakerfið harðlega og talið óhæfu að útvegsmönnum og sjómönnum væru afhentar auðlindir sjávar sem þeir gætu síðan ráðskast með að eigin vild, selt aflann óunninn úr landi og gefið fiskvinnslunni langt nef.
Sagt var frá því í Fiskifréttum 5. mars 1999 að rúm 30 ár væru frá því að Sævar Friðþjófsson tók við skipstjórn á Saxhamri SH 50. Skipið var smíðað í Stálvík í Garðabæ fyrir fjölskyldufyrirtæki Sævars, föður hans og bróður og afhent í febrúar 1969. Gengið var frá ráðningu áhafnar 18. febrúar sama ár. Farið var í fyrsta róðurinn skömmu síðar.
Sala á skreið til Nígeríu var áberandi fréttaefni í íslenskum fjölmiðlum á sínum tíma. Þau viðskipti voru ekki alltaf dans á rósum eins og lesa má úr frásögn Fiskifrétta frá 11. júlí 1986 sem hér er gripið niður í.